Hugsanir mínar...
22.01.2008 20:54:02 / Anna

Blogg segiði...!!

Gleðilegt ár....Kannski soldið seint fyrir það en ég meina betra seint en aldrei!

Ég hef einfaldlega ekki nennt að setjast niður til að blogga, enda ekki margir sem lesa þetta held ég! Fólk meira á myspace, en ég hendi samt einni stuttri inn núna....

Hvað hefur gerst fyrstu þrjár vikurnar á nýju ári??
Svo sem ekki margt, skólinn jú byrjaður og fimm fög eiga hug minn allann þessa önninna... Féll í hagfræðinni um jólin en náði hinu, ágætt en samt ekki nógu gott... átti reyndar ekki skilið að ná neinum prófum miða við lestur síðustu annar, þannig ég er bara sátt með þetta :) Ætla að taka mig ærlega á í lestri og lærdómi, þetta verður strembin önn með tveimur stórum verkefnum sem er nauðsynlegt að fara kíkja á strax... Annars leggst skólinn bara vel í mig, mér til mikillar ánægju fékk ég liðsstyrk, hana Írisi sem var með mér í Verzló... Alveg agalega sátt með það þar sem hún er svo afskaplega jákvæð og dugleg :D

Nóg af skóla... Er líka að vinna, eimmitt vinnuhelgi næstu helgi! Var í fríi síðustu helgi sökum smá aðgerðar á nebbanum... Fólk hefur komið til mín og sagt mér hvað nefið líti nú vel út núna, en það er misskilningur því það var ekkert verið að laga nefið í útliti bara verið að krukka í beinið svo öndunarvegurinn verði greiðari...en takk fyrir hrósið samt ;)
Ég mátti því ekki vinna né fara í ræktina í 10 daga, það var nokkuð strembið en ég meina illu er best af lokið :) Eftir nokkrar svefnlausar nætur og mikið hor þá er ég orðin nokkuð góð :)

Annars gengur lífið bara sinn vanagang hérna í Reykjavíkinni, maður sefur, borðar, lærir og æfir.... Sem er bara hreint ágætt...

jæja sýnið lit og kommentið... langar að sjá hvort það séu einhverjir að lesa þetta eða hvort maður eigi hreinlega að hætta þessari vitleysu!!!

 

Eigið góða viku....

 

Anna María


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 17:20:40 / Anna

Jól, Jól, Jól





Gleðileg jól kæru lesendur :)


Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar...


Kveðja, Anna María


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 16:42:29 / Anna

Stundum er nú gott að vera bara að vinna og ekki í skóla...

Vá hvað ég og örugglega mjög margir þarna úti er komin með leið á prófalestri...Alveg að gefast upp og eitt próf til stefnu... Ég varð svo heppin að ná mér í flensuna og er búin að liggja fyrir síðan á þriðjudagsmorgun... Hélt það væri óskrifuð regla að það mætti ekki smita fólk sem væri í prófum! Ég hef samt heyrt að það séu margir búnir að lenda í svipuðum aðstæðum, ekki getað lært staf og því þurft að tilkynna veikindi í prófum... Ég vona að það gerist nú ekki hjá mér, hef getað lært slatta í dag og smá í gær... Vonandi bara að prófið verði sanngjarnt... Allavegana ekki eins nasty og helv.rekstrarhagfræðiprófið sem ég fór í síðasta laugardag... Held ég nái því ekki, en maður veit aldrei! Stundum hefur maður á tilfinningunni að kennararnir séu bara að reyna að fella mann...óþolandi þegar prófin eru hreinlega ekki sanngjörn:/

Semsagt 3 búin, 1 eftir... Get ekki beðið eftir að klukkan slái hálf fimm þann 21.des... enginn lestur og ekkert puð fyrr en á nýju ári....

Stefnan verður tekin á Nasa á morgun, ásamt vel völdum stelpum :) Hef heyrt að það ætli slatta af fólki þangað þannig ég vona bara að ég hitti sem flesta :D Annars má maður ekki hugsa of mikið um þetta því þá fer hugurinn á flakk og lítið af stjórnunarkenningum sem festast í hausnum!

Er nánast búin með allar jólagjafirnar, sem betur fer... Leiðinlegt að eiga mikið eftir þegar svona stutt er í jólin... Annars finnst mér jólin ekkert vera að koma... Verð að vinna 22.og 23.des til miðnættis...það er bara stemming í því... Allir voða hressir að leggja loka hönd á jólainnkaupin... Getur ekki verið annað en skemmtilegt :D

Áramótin, óplönuð...

Jæja ætla að einbeita mér aðeins að bókunum....

Hafið það gott um helgina og njótið þess að vera til ;)

Anna María

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 17:23:03 / Anna

Eitt af fjórum búin...

Ææ maður er nú eitthvað andlaus þegar prófatíðin stendur sem hæsst...það er bara þannig... En maður finnur sér jú oft eitthvað annað skemmtilegra að gera þegar maður á að vera að læra! T.d. að blogga, borða þegar maður er ekki svangur, setja í þvottavél og annað spennandi :)

Eitt próf búið, markaðsfræði síðasta föstudag...Gekk bara nokkuð vel held ég, eða þangað til annað kemur í ljós! Stærðfræðipróf á morgun, var því í stærðfræðibúðum alla síðustu helgi...soldið strembið að læra stæ.í 6 tíma...en það hafðist samt :)

Svo er það blessuð hagfræðin á laugardaginn, 50 krossar og dregið niður fyrir ranga krossa, ásamt því að þurfa 6.5 til að ná prófinu... já ég er nett stressuð fyrir þessum tveimur prófum, en það verður bara að koma í ljós hvað gerist!

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar 5.des :D Gaman að sjá hvað margir muna eftir manni, ekkert merkilegt afmæli, en samt alltaf gaman að fá nokkra pakka og knús ;)

Annars er bara strembinn lærdómur fram á laugardag, eftir það hef ég alveg 6 daga í síðasta prófið... þannig ég hef tekið að mér nokkrar vaktir á kaffihúsinu, þar sem ég veit að 6 dagar eru alltof mikið fyrir þetta próf! Svo vantar manni líka pening...

Jæja, back to the books ;)

Anna María

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:33:28 / Anna

Afmæli Afmæli...

Minns á afmæli eftir einn og hálfan tíma...

Alltaf gaman að eiga afmæli, maður verður aldrei of gamall fyrir það eða hvað?

Reyndar væri ég nú alveg til í að eiga afmæli á öðrum tíma en akkúrat svona á prófatímabili... En hvað getur maður gert í því...Nákvæmlega ekkert...þannig það þýðir ekki að kvarta!


Fyrsta prófið á föstudaginn, sendið mér strauma ;)


Gangi ykkur vel í prófum, þið sem eruð að læra...


Anna María


» 16 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 11:31:02 / Anna

LæriLæriTækifæri...

Ný færsla, alveg kominn tími á eina slíka...
Það er nú samt alveg ótrúlega lítið að frétta, skólinn alveg að kæfa mann með stressi þessa dagana, alltof stutt í próf 8| Ég gæti nú svo sem verið stressaðari, en þetta er svona allt að gerast. Ég er búin að vera fara á hlöðuna fyrir skóla nokkrum sinnum og það virkar bara fínt fyrir mig.... Reyndar er ég orðin frekar léleg í að vakna á morgnanna og hef tekið upp þann ósið að Snooza í næstum hálftíma áður en ég drulla mér framúr...


Ég hef aldrei snoozað á æfinni, en núna þegar ég veit að ég er að vakna til að fara lesa þá bara get ég ekki stokkið uppúr rúminu... og þannig verða morgnarnir enn erfðiari! Ég vona samt að þetta sé bara eitthvað tímabil sem gengur fljótt yfir, því þetta er bara ekkert sniðugt! :S

Sporthúsið er alveg að gera sig, er alveg að fíla það að æfa þarna, alltaf nóg af fólki, en samt ekki of mikið...passlegt :)

Vinnan er líka að gera sig, var að vinna síðustu helgi, og tek auka næsta laugardag...svona smá auka pening fyrir jólagjöfum... þarf á því að halda núna :) Skellti mér á Icefitness á laugardaginn, tveir skagamenn að keppa, stóðu sig mjög vel... Við Ásdís veltum því fyrir okkur að taka þátt á næsta ári...hehe... held það væri mjög mikil áskorun, léttast um svona 10 kg og fara svo að skera og æfa eins og mófó...spurning!

Annars eru dagarnir voða svipaðir, sofa,læra,æfa og borða... gerist varla skemmtilegra ;)

:

Þangað til næst....


Anna María


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 22:45:11 / Anna

Súkkulaði-DVD-Helgi

Ég er alveg búin að sjá það að það er alveg ástæða fyrir því að maður djammar hverja helgi... það er nákvæmlega ekkert annað hægt að gera! Dagskráin í sjónvarpinu er bara alveg til skammar, búin að vera heima núna bæði kvöldin af þessari helgi og ekki getað horft á neitt almennilegt, hvorki í gær né í kvöld... og hvað gerir maður þá, jú fer út á leigu og nær sér í misgóðar dvd...
Í gær kom Nína til mín og við fórum á nammi-fyllerí, fengum okkur bragðaref, bland í poka og dvd...næs :)

Í kvöld ákváðum við mútta að fá okkur eitt stk.dvd, ágæt mynd og auðvitað fylgdi smá nammi með ;) þótt svo ég sé í aðhaldi þá finnst mér ég alveg mega fá mér smá gotterí bæði á föst og laug... frekar súrt eiginlega!


Ég byrjaði í nýrri vinnu í dag, á kaffihúsi. Var að vinna í rúma 5 tíma og það var crazzzy að gera allan tímann, mér líiður bara eins og ég hafi verið að hlaupa maraþon eða eikkað...alveg þvílíkt pirruði í löppunum, kvíði hálf fyrir því að vakna í fyrramálið! Vonandi get ég samt farið í ræktina fyrir vinnu á morgun, því ekki geri ég það eftir vinnu! Vinnan er samt rosa fín, alveg að fíla svona action ;)


Ég er búin að fjárfesta í korti í Sporthúsinu, ótrúlega fínt að æfa þar, get ekki sagt annað... maður er bara með sitt eigið sjónvarp á hverju tæki, bara þægilegt :) Svo er líka bara gaman að breyta til og prufa önnur tæki en er hérna uppá Skaga...


Lærdómur, já hvað er það! Þarf að taka mig á í lestri og spurning um að fara byrja aðeins á stærðfræðinni... líður bara eins og mesta heimskingja í dæmatímum, nema núna síðast þá gekk ég glöð útúr tíma, fór heim og fór yfir dæmin aftur því ég sá að þetta var eitthvað sem ég gæti hugsanlega lært :D Ógeðslega sátt með það... En ef þú hefur tíma og er klár í diffrun, logarithma og heildun...plís talaðu við mig :)

Annars hef ég ekki meira að segja á þessu ógeðslega laugardagskvöldi...alveg orðin þreytt á þessari rigningu og ég tala nú ekki um þetta rok hérna... Hvern nennir út í þetta!


Jæja hafið það gott, ég ætla að nudda kálfana fyrir morgundaginn...hehe :)


Anna María


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 21:20:43 / Anna

I never saw it comming...I should have started running...

Eitthvað er þessi bloggheimur farinn að dala... kannski eru my-space og facebook að taka við... ég kann allavegana á hvorugt, spurning að koma sér inn í það... mér finnst ég allavegana bara vera að blogga fyrir sjálfa mig, lítið um komment að minsta kosti! Þið verið að sýna meiri lit svo ég haldi þessu áfram... ég bið nú ekki um mikið...!

Það styttist og styttist í prófin, fékk fína töflu, nema kannski það að klára 21.des klukkan 16:30 getur ekki talist gott! Fæ fínan tíma á milli prófa og það er víst sem skiptir máli... byrja 7.des þannig kannski get ég notið afmælisdagsins aðeins meira en ég hef gert síðustu ár! Samt kemst maður auðvitað ekki undan lærdómi, en ég get verið búin að undirbúa mig áður þannig ég hafi smá space þann 5.des :)


Verkefnin eru svona að pressa á mann, og auðvitað það að byrja að lesa allt efnið... finnst enn eitthvað svo skritið að vera að lesa svona löngu fyrir próf... ætla að koma mér upp rútínu, og lesa áður en ég mæti í tima, fara upp á Hlöðu... það gengur allavegana ekkert hérna heima!

Síðasta helgi var ekkert smá næs...fórum í bústað, ótrúlega þægilegt að skipta um umhverfi og slaka á...fara í göngutúra, horfa á dvd, fara í pottinn og borða góðan mat..mmm... Ég var allavegana endurnærð á mánudaginn fyrir utan smá magakveisu...

Ég og Birna erum að massa badmintonið, reynum að mæta einu sinni í viku, stundum tvisvar...ýkt gaman að mæta bara til að spila og slá :) Keppnisskapið kemur samt alveg upp í mér, væri alveg til í að mæta á æfingar og spila við krakkana... En læt þetta nú samt nægja í bili ;)


Annars er nú bara mest lítið að frétta, Gimmóhittingur á morgun og skólinn... er að hugsa um að fá mér vinnu, er svo lítið í skólanum, gæti alveg unnið 2-3 daga í viku, já eða aðra hverja helgi...spurning samt að geyma það þar til eftir prófin og skipuleggja næstu önn með það í huga...

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...

Anna María


» 11 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 18:06:36 / Anna

Rekstrarhagfræði á hug minn allan.....Líklegt...

Ég dýrka þegar maður hefur ekkert planað fyrir helgarnar.... Ekkert stress, bara sjá hvað er í boði og vonandi verður það sem minnst því ég er alveg í þeim gír þessa dagana =)

Í kvöld ætla ég að vera heima undir sæng, ætla að búa mér tiil heita doriotos sósu og bara kúra :)
Pabbi spurðí mig áðan hvort ég væri orðin svona gömul, þegar ég sagði honum að ég ætlaði að hanga heima í kvöld... Veit nú ekki hvort það sé ástæðan... Maður fær bara ekki það sama útúr djömmunum núna eins og áður...hehe... hljómar ellilega!

Á morgun verðum við Nína siðgæðisverðir, eins gott að fólkið hagi sér vel, annars er okkur að mæta...eheh ;)

Annars þarf ég að læra hellings um helgina, próf í hagfræði á miðvikudaginn og svona nett stress fyrir það, fyrsta háskólaprófið... Það gildir 15% til hækkunar... þannig ef ég næ að tileinka mér þetta efni þá er ég í nokkuð góðum málum fyrir lokaprófið...þetta er sían í viðskiptafræðinni!

Próftaflan var birt á miðvikudaginn, alveg nokkuð ánægð með skipulag prófanna hjá mér. Klára reyndar ekki fyrr en 21.des klukkan hálf fimm, en það skiptir engu, nægur tími fyrir öll prófin og það er það sem skiptir máli :)

Fór á Superbad í vikunni, nokkuð skemmtileg...samt soldið mikill strákahúmor...en góð :)

Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili...

Njótið helgarinnar ;)

Anna María


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 17:07:55 / Anna

It's tooo late....

Jæja góðan daginn allan daginn...

Vikan hálfnuð, eiginlega meira en það því það er enginn skóli á föstudaginn :D Ég ætla að mæta í dæmatíma í stæ á morgun og verð því til átta annað kvöld í skólanum...jibbí... en það er ágætt að fá föstudagana frí, sofa út og vonandi ná að læra eitthvað af viti. Annars er vikan bara búin að vera ágæt, skólinn er bara á fullu, verkefnin svona að koma aftan að manni og maður finnur að pressan er að fara detta á... Samt er ég ekki alveg komin í lesgírinn, vona að hann fari að banka uppá hjá mér sem fyrst!!

Síðasta helgi var bara stórmerkileg, gerði nákvæmlega ekki neitt. Hitti Nínu á föstudagskvöldið, horfðum á imbann og spjölluðum, fór svo bara að sofa um ellefu. Á laugardaginn lærði ég alveg helling, fullt af stærðfræði :O) Hélt ég ætlaði smá út um kvöldið en var bara nörd og hélt áfram að reikna og fór fyrir miðnætti í háttinn... þannig nóg var um svefn síðustu helgi!

Á sunnudaginn hittumst við öll fjölskyldan og snæddum saman á Aski því afi varð 76.ára, vorum alveg 19 stykki saman og fengum hreint ágætan mat... var ánægð með súkkulaðimúsina í eftirrétt, held hún sé sú besta sem ég hef smakkað hingað til... oft eru þær svo væmnar og með miklu kakói en ekki í þetta skiptið ;)

Næsta helgi er of pökkuð, alltof mikið um að vera...það er annað hvort af eða á! Semsagt á laugardaginn er afmæli hjá Hrafnhildi í bænum, og líka afmæli hjá Regínu og Brynju hérna á skaganum.... Ekki nóg með það því það er líka ball, og hvenær fvar síðast ball...tjahh held bara um páskana! Mig langar að vera á öllum stöðum, er það hægt??
Fór í kringluna áðan og ætlaði að finna afmælisgjafir, gekk bara ekki neitt....þoli það ekki... alltaf þegar maður ætlar að kaupa eitthvað þá finnur maður ekki neitt...bögg!!!

Ég ætla að prenta út glósur fyrir matinn... Adios Amigos :)

Anna María


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 20:11:42 / Anna

Take me with you to the stars...

Er það bara ég eða er alltaf sunnudagskvöld og löng vika framundan! Helgin var hin fínasta, náði að læra helling í dag sem er ákveðið skref hjá mér =) Svaf til hádegis og hef lært af og til í allan dag, þannig það eru rólegheit í kvöld!

Ég og Agnes fórum á tónleikana á Gauknum á fimtudaginn þar sem margir listamenn komu fram og meðal annars hljómsveitin Myst og ég bara kolféll, söngkonan alveg frábær og ég verð bara að eignast diskinn með þeim. Ég er búin að vera hlusta á tvö lög með þeim á myspace síðan þá og bara er alveg að fíla þau:) Annars voru alveg nokkur atriði sem voru góð þarna, meðal annars voða krúttlegir breikarar, afródans og já nokkrar hljómsveitir. Mér fannst þetta allavegana aðeins menningarlegra en að fara í bíó!

Annars eru verkefnin að hrúgast yfir mann í skólanum og nett pressa komin, en það er bara að koma sér af stað og byrja, þá er þetta ekkert mál.
Ég held ég hafi lært meira núna en síðustu tvö árin í fjölbraut, enda lítill lærdómur sem maður þarf að afreka til að komast létt í gegnum þetta. Finnst eins og ég sé í prófalestri því maður er ekkert vanur að lesa námsbækurnar fyrr en rétt fyrir próf!

Ræktin er svona að komast á fullt hjá mér, er að lyfta þrisvar í viku og stefni á að vera hellmössuð...hehe...nei ekki alveg, bara koma mér í ágætt form, en til þess þarf djammið að sitja á hakanum næstu vikur, veit nú ekki hvernig það á eftir að takast, en sjáum til ;)

Ég kalla mig nokkuð góða að vera blogga annan hvern dag, þannig það er eins gott að ég fái fleiri komment en í síðustu færslu...annars er þetta ekkert skemmtilegt!

Jæja ætla henda einni DVD tækið...

Eigið góða lærdóms/vinnuviku.

Anna María


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 11:34:10 / Anna

Blogg segiði.....!

Það er komið ansi langt síðan ég bloggaði síðast, en það er líka bara ein ástæða fyrir því...Við vorum að flytja og pabbi ákvað að færa allt yfir til símans...ekkert athugavert við það! Nema hvað það tók rúmar þrjár vikur að fá netið og heimasíma 8| Ég helt í alvörunni að ég mundi tjúllast...maður kemst að því þegar maður verður netlaus hvað maður er ótrúlega háður því.... Sérstaklega eftir að skólinn byrjaði, maður þarf einhvernveginn að kíkja á Uglu áður en maður fer í háttinn...bara svona just in case! Allavegana það var einhver bilun hjá simanum og bla bla einn sagði þetta og annar hitt... ég tók málin í mínar hendur og hringdi alveg brjáluð...nei nei bara svona nett að benda þeim á þessa góðu þjónustu! Það var í siðustu viku og við fengum netið í fyrradag... Ég vil meina að það hafi verið mér að þakka...hehe

Nóg um Þetta, ég hef verið að gera ýmislegt í september, en þó aðallega að einbeita mér að djamminu og því sem því fylgir ;) Ætlaði að taka edrú helgi á þetta en það eru bara freistingar út um allt...þessi háskóli er svoldið mikið djamm finnst mér... en ég meina maður er bara einu sinni ungur svo mikið er víst ;) Það er bara þannig þegar maður er á lausu þá finnst manni ekkert gaman að hanga einn heima um helgar að horfa á dvd...neibb engan veginn skemmtilegt...og hvað er þá annað í boði...jú djamma með öllu hinum fólkinu sem er að leita... sýna sig og sjá aðra! Það er málið...

Ég hef líka verið ansi dugleg í ræktinni, lyfta og massa mig upp... svo eyðilegg ég það um helgar með einhverju sukki... En þetta er allt að koma... Talandi um skólann þá er bara gígantískt mikið lesefni og ekki séns að komast yfir þetta allt, sérstaklega þegar ég er varla byrjuð :S Segi það kannski ekki alveg, en ég er ekki búin að vera nógu dugleg, ég gæti nýtt tímann miklu betur, ekki á ég börn eða sé um heimili eins og svo margir sem eru í háskólanámi... mín afsökun er einfaldlega LETI... sad...I know!!

Jæja stærðfræðitiminn alveg að byrja...

Eigið góða helgi ;)

Anna María


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 12:55:23 / Anna

Wake me up, when september ends...

 

 

Stelpur ég er á lífi, bara ekki tengd við umheiminn... ekkert net og enginn heimasími!!

Skólinn kominn á fullt og bara brjálað að gera í sveitinni ;)

Anna María

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 15:06:05 / Anna

BLaBLA

 

 

Hafiði lennt í því að vera með svo miklar harðsperrur að ykkur líður eins og þið hafið lent í slag og verið lúbarinn!!

Þannig líður mér akkúrat núna... Takk Rósa ;) hehe

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 12:35:23 / Anna

Fólk getur verið fíbl....

Vika þangað til skólinn byrjar, vá ég hlakka til að takast á við þetta :) Fór til Rannveigar í gær og fékk stærðfræðibókina, ég er ekki frá því að ég hafi bara svitnað við að opna hana! Allt á voða flóknri ensku finnst mér...hehe... en þetta lærist víst fljótt og það komast allir í gegnum þetta, þannig ég verð engin undantekning :) Annars finnst mér ég ekki hafa lært neitt af viti síðan ég var í 4.bekki í Versló...fyrir tjahh...alltof mörgum árum8| Maður þarf bara að koma sér upp einhverri rútínu, vakna snemma, fara í ræktina og mæta í skólann eftir hádegi... ef ég hefði mátt ráða þá hefði ég viljað frekar vera búin á hádegi og nota svo restina af deginum í lærdóm...en maður ræður víst litlu þegar maður er fyrsta árs nemi!!

Helgin var hin ágætasta, fyrir utan nefrennsli og almennan slappleika á fim.og föst. Við fluttum alla búslóðina í nýju íbúðina á föstudaginn og sváfum fyrstu nóttina... alltaf skrítið, en voða huggulegt :) Ég kíkti aðeins á Regínu og stelpurnar eftir það, beilaði samt á djammi og fór svona á skikkanlegum tíma að sofa! Á laugardaginn fór ég í bæinn í mat til Hadda og Söru, geggjaður matur... djammið var svo tekið á þetta, hittum allskonar skemmtilegt fólk í bænum... leigubílaröðin var ekkert ógó slæm, ekki nema hálftíma bið...

Sunnudagurinn fór í hittinga, sótti stæ.bókina til Rannveigar, fór á Pizza Hut með Agnesi og kíkti á nýju íbúðina hjá Ásdísi og Símoni... Skellti mér svo í göngutúr með Regínu seinnipartinn... já stundum er maður aktivur! Kvöldið fór svo í rólegheit, dvd með sjálfri mér...hehe...

Vikan verður róleg, vinna og ræktin hafa hug minn allan. Rósa var að lata mig fá nýtt lyftingarprógram, þannig nú ætla ég að lyfta þrisvar í viku og brenna einu sinni, sjá hvort það virki ekki bara betur en eilífðar brennsla!

Næstu helgi ætlar Hrafnhildur að koma til mín og djamma, lýst bara helvíti vel á það...alltaf gaman að fá vinkonur sinar hingað til sín :D

Annars hef ég ekki frá fleiru að segja frá í bili...

Eigið góða skóla/vinnu viku :)

Anna María


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Klukkan
P�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1790 dögum