Hugsanir mínar...
20.12.2007 16:42:29 / Anna

Stundum er nú gott að vera bara að vinna og ekki í skóla...

Vá hvað ég og örugglega mjög margir þarna úti er komin með leið á prófalestri...Alveg að gefast upp og eitt próf til stefnu... Ég varð svo heppin að ná mér í flensuna og er búin að liggja fyrir síðan á þriðjudagsmorgun... Hélt það væri óskrifuð regla að það mætti ekki smita fólk sem væri í prófum! Ég hef samt heyrt að það séu margir búnir að lenda í svipuðum aðstæðum, ekki getað lært staf og því þurft að tilkynna veikindi í prófum... Ég vona að það gerist nú ekki hjá mér, hef getað lært slatta í dag og smá í gær... Vonandi bara að prófið verði sanngjarnt... Allavegana ekki eins nasty og helv.rekstrarhagfræðiprófið sem ég fór í síðasta laugardag... Held ég nái því ekki, en maður veit aldrei! Stundum hefur maður á tilfinningunni að kennararnir séu bara að reyna að fella mann...óþolandi þegar prófin eru hreinlega ekki sanngjörn:/

Semsagt 3 búin, 1 eftir... Get ekki beðið eftir að klukkan slái hálf fimm þann 21.des... enginn lestur og ekkert puð fyrr en á nýju ári....

Stefnan verður tekin á Nasa á morgun, ásamt vel völdum stelpum :) Hef heyrt að það ætli slatta af fólki þangað þannig ég vona bara að ég hitti sem flesta :D Annars má maður ekki hugsa of mikið um þetta því þá fer hugurinn á flakk og lítið af stjórnunarkenningum sem festast í hausnum!

Er nánast búin með allar jólagjafirnar, sem betur fer... Leiðinlegt að eiga mikið eftir þegar svona stutt er í jólin... Annars finnst mér jólin ekkert vera að koma... Verð að vinna 22.og 23.des til miðnættis...það er bara stemming í því... Allir voða hressir að leggja loka hönd á jólainnkaupin... Getur ekki verið annað en skemmtilegt :D

Áramótin, óplönuð...

Jæja ætla að einbeita mér aðeins að bókunum....

Hafið það gott um helgina og njótið þess að vera til ;)

Anna María
Agnes Björg skrifaði
Gangi þér vel í prófinu á eftir... þetta er alveg að verða búið :)
Anna María skrifaði
Takk fyrir það :) Sé þig í kvöld =)
Unnur S skrifaði
til hamingju með að vera búin í prófun.. skáluðum nú ósjaldan við það tækifæri í gær ekki satt hehe =)
Anna María skrifaði
Hehe það var alltaf tilefni til þess :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
P�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1083 dögum